Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12030
Hér mun ég fjalla um mitt vinnuferli frá því að hugmynd fæðist þangað til að verk er fullklárað og sýnt áhorfendum. Ég líki ferlinu við lífshlaup mannsins og skipti því upp í kaflana fæðing, líf, dauði og eilíft líf. Fyrst segi ég frá því hvernig setningar sem mér finnast áhugaverðar verða uppspretta verka minna, því næst tala ég um þær reglur og vinnuaðferðir sem ég tileinka mér við framkvæmd verka og síðan fjalla ég um samband mitt við verkin eftir að þeim hefur verið lokið. Að endingu velti ég fyrir mér hlutverki verka minna í hinum stóra heimi og hvert ég stefni sem myndlistarkona.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerd.pdf | 302.71 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |