is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12037

Titill: 
  • Ungar konur og offita : áhersla á þjónustu í tengslum við hjáveituaðgerðir
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangurinn er að afla upplýsinga um offitu og hjáveituaðgerðir með áherslu á ungar konur og í framhaldi af því leggja fram rannsóknaráætlun til að dýpka þekkingu á efninu.
    Offita er vaxandi heilsufarslegt vandamál hér á landi sem og í heiminum. Konur eru í meirihluta þeirra sem kjósa að fara í hjáveituaðgerð, til þess að fá lausn á offituvanda sínum. Tilgangur fræðilegrar umfjöllunar þessa verkefnis er að skoða hvað rannsóknir hafa leitt í ljós varðandi viðfangsefnið. Meðal annars sýna rannsóknir að hjáveituaðgerð er talin örugg meðferðarleið. Ýmsir fylgikvillar hafa komið upp í kjölfar hjáveituaðgerða en með góðum undirbúningi og eftirfylgni má draga úr þeim. Fræðsla um næringu og breytingar á orku- og bætiefnaþörf er mikilvægur hluti ferilsins. Bætiefnameðferð er sérstaklega nauðsynleg fyrir konur á barneignaraldri. Hvað þyngdartap varðar hefur hjáveituaðgerð besta langtíma árangurinn af þeim meðferðum sem bjóðast einstaklingum í offitu .
    Lögð voru drög að rannsókn sem hefur þann tilgang að rannsaka sérstaklega stöðu ungra kvenna á Íslandi sem hafa farið í hjáveituaðgerð. Með eigindlegri rannsóknaraðferð, byggðri á hugmyndafræði Vancouver-skólans í fyrirbærafræði, teljum við að hægt sé að átta sig betur á ástæðunum sem liggja að baki ákvörðunartöku ungra kvenna um aðgerð. Einnig hversu víðtæk áhrif geta komið fram í kjölfarið á hjáveituaðgerðum og hvaða áhrif aðgerð getur haft á líf þeirra í kjölfarið. Lítið er um ritrýndar fræðilegar heimildir um offitu og hjáveituaðgerðir hér á landi en við teljum að sérstök þörf sé á eigindlegum rannsóknum til þess að dýpka þekkingu og auka skilning hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstarfsmanna. Aukin þekking leiðir til betri fræðslu og undirbúnings.
    Lykilhugtök : Offita, offituaðgerðir, hjáveituaðgerð, konur, hjúkrun, næring, meðganga

Samþykkt: 
  • 5.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12037


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
forsida.pdf114.51 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna
offitaoghjaveituadgerd.pdf442.61 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna