Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/12172
Radon úr bergrunninum er í öllu grunnvatni. Remma radons í grunnvatni hefur verið mæld í áratugi á Íslandi, en breytingar í henni geta verið fyrirboðar jarðskjálfta. Við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands var í lok 10. áratugar síðustu aldar þróuð ný einföld mælitækni til að auka næmni mælinganna. Þá er radon dregið úr 200 ml vatnssýni yfir í 15 ml af sindurvökva í 22 ml sindurglasi. Einnig var þróað einfalt og næmt vökvasindurkerfi, sérhannað til radonmælinga.
Meginhluti radons í vatninu átti að flytjast yfir í sindurvökvann. Í stað 72% kom aðeins um 40%. Rannsókn á þessu tapi benti til að hluti af radoninu væri bundinn í vegg glerflöskunnar. Líkanreikningar sem kynntir eru hér benda til að við jafnvægi sé um 70% af radoninu bundið í veggnum og að tímastuðullinn í flutningi radons milli glers og vökva sé um 15 mínútur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Emil_Hardarson_Radon.pdf | 4,75 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |