Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/12232
Radonmælingar eru með algengustu geislunarmælingum sem gerðar eru í heiminum. Yfirleitt styðjast þær við mælingar á fleiri en einni hrörnun í skammlífri geislunarkeðju radons. Í nærri öllum greinum sem að fjalla um mælingar á þessari geislunarkeðju má sjá grundvallar óvissu metna út frá Poisson tölfræði. Samkvæmt henni er staðalfrávik mælinga rótin af M þar sem M er heildar fjöldi taldra púlsa. Bent var á í stærðfræðilegri vísindagrein fyrir 5 áratugum síðan að Poisson tölfræði eigi ekki við í mælingum á geislunarkeðjum. Sú aðferð sem almennt er notuð í dag byggir því á vitlausum forsendum en með henni er óvissa í mælingum vanmetin. Einföld aðferð sem byggir á Monte Carlo reikningum er kynnt til þess að reikna rétt staðalfrávik í þessum mælingum.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Bs.pdf | 1,23 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |