en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/12247

Title: 
  • Title is in Icelandic Áhrif umhverfisógnar á efnishyggju. Leiða óttaboð um umhverfisógn til aukinnar efnishyggju?
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Þar sem loftslagið er stöðugt að breytast og ljóst þykir að hegðun manna gerir illt verra, er mikilvægt að efla ábyrga umhverfishegðun hjá fólki. Tilraunir til þess hafa gengið misvel, enda er umhverfisvæn hegðun þvert á ríkjandi gildi í hinum vestræna heimi; efnishyggju. Efnishyggið fólk telur að efnisleg gæði færi þeim hamingju en ótal rannsóknir sýna að svo er ekki. Til að sporna við frekari útbreiðslu efnishyggju hafa orsakir hennar verið allnokkuð rannsakaðar. Niðurstöður þeirra rannsókna eru að ógn og óöryggi geti aukið efnishyggin gildi. Ógnun og óttaboð hafa mikið verið notuð til þess að beina athygli fólks að loftlagsbreytingum og afleiðingum þeirra. Í þessari rannsókn verður því skoðað hvort sú aðferð sé að hafa þau áhrif að efnishyggja, og þar af leiðandi umhverfisvandinn, aukist. Gerð var tilraun með samanburði tveggja hópa, annar (n = 79) las ógnvekjandi texta um umhverfisvandann en hinn (n = 85) las vongóðan texta. Niðurstöður sýndu, þvert á tilgátur, að umhverfisógn dregur úr efnishyggju. Niðurstöðurnar gagnast þeim sem vinna að stefnumótun í umhverfismálum og hrekja ríkjandi skoðun fræðimanna að hverskyns óöryggi leiði til efnishyggju.

Accepted: 
  • Jun 20, 2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12247


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Áhrif umhverfisógnar á efnishyggju.pdf568.01 kBOpenHeildartextiPDFView/Open