is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1232

Titill: 
  • Bann við þrælahaldi og nauðungarvinnu samanber 4. grein Mannréttindasáttmála Evrópu og samanburður sambærilegra greina
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er byrjað á því að fjalla almennt um bann við þrælhaldi með því að skilgreina
    helstu hugtök þrælahalds og nauðungarvinnu. Farið er yfir sögu banns við þrælahaldi í stuttu
    máli og eru m.a. kynnt áhrif náttúruréttar á bann við þrælahaldi. Sagt frá skilgreiningu
    rómverskra laga um frelsi og þrælhald ásamt hugmyndum Jean Jacques Rousseau sem komu
    fram í riti hans Samfélagssáttmálinn. Einnig verður í stuttu máli kynnt tilurð og innihald
    mannréttindasáttmála Evrópu og hvernig mál verða tæk fyrir mannréttindadómstólnum í
    Strassborg. Í þessari ritgerð er leitast við að svara spurningunum hvaða verndarlag 4. grein
    mannréttindasáttmálans veiti og hvort sambærilegar greinar í alþjóðasáttmálum,
    svæðissamningum og stjórnarskrám veiti betri eða síðri vernd? Erfitt hefur reynst að komast
    að fullnægjandi niðurstöðu um verndarlag greinarinnar, þar sem engir dómar hafa fallið til
    sakfellingar og með því engin skýr fordæmi til um hvernig skýra beri greinina. Hinsvegar má
    finna vísbendingar um túlkun greinarinnar í nokkrum sýknudómum s.s. í máli Van Der
    Mussele gegn Belgíu1. Í ritgerðinni er komist að þeirri niðurstöðu að með hugtökunum
    þrælahald og þvingunar- og nauðungarvinna felist ákveðið verndarlag og ekki var hægt að sjá
    að það skipti máli hvort ákvæði greinanna voru með eða án undantekninga. Það sem skipti
    mestu máli var hugtakaval þeirra, uppbygging og áhersla um verndarlag greinanna.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1232


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Efnisyfirlit.pdf53,43 kBOpinnÞrælahald - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá.pdf66,92 kBOpinnÞrælahald - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Ritgerð með samningi.pdf521,4 kBTakmarkaður (HÁ)Þrælahald - heildPDF
Útdráttur.pdf69,33 kBOpinnÞraælahald - útdrátturPDFSkoða/Opna