Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/12368
Í greininni er kynnt samantekt á ýmsum aðferðum við gagnaöflun starfendarannsókna og úrvinnslu þeirra. Samantektin byggir á heimildarýni en ásamt heimildavinnu var rýnt í frásagnir af starfendarannsóknum sem gerðar hafa verið hér á landi og fundust í gagnagrunnum, meðal annars tímaritsgreinar, bækur, meistara- og doktorsverkefni. Athugunin leiddi í ljós að aðferðir við gagnaöflun eru mjög fjölbreyttar og flestar rannsóknirnar byggjast á fleiri en einni aðferð við gagnaöflun. Í greininni verða tekin dæmi um það hvernig rannsakendur safna gögnum um starf sitt. Frásagnir af niðurstöðum starfendarannsókna eru notaðar til að sýna öðrum hvað rannsakandinn lærir í gegnum rannsókn sína og hvernig það hefur áhrif á gerðir hans. Þeir sem lesa niðurstöður þeirra geta sett sig í spor rannsakandans, samsamað sig reynslu hans og ígrundað gerðir hans.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
hafdis.pdf | 279,97 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |