Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/12472
Markmið ritgerðarinnar var að öðlast skilning á styrktarþjálfun fyrir börn og unglinga. Áhersla var lögð á að skoða hvort styrktarþjálfun geti bætt frammistöðu og komið í veg fyrir meiðsli hjá börnum og unglingum sem iðka knattspyrnu. Eldri heimildir um styrktarþjálfun fyrir börn og unglinga voru á þann veg að styrktarþjálfun var álitin skaðleg vegna þess að líkami þeirra væri ekki búin að ná fram fullum þroska. Þar af leiðandi væri álag á líkama og þá aðallega bein ekki ákjósanlegt fyrir einstaklinga sem væru að þroskast og meiðslahætta því mikil. Rannsóknir hafa hinsvegar sýnt að styrktarþjálfun, sem inniheldur viðeigandi kennslu á tæknilegri framkvæmd æfinga og yfirumsjón frá hæfum leiðbeinendum eða þjálfurum sé skilvirk og örugg leið til að bæta frammistöðu, fyrirbyggja meiðsli og bæta heilsu almennt. Það sem kemur fram í ritgerðinni er hvernig sé best að haga styrktarþjálfun fyrir líkamlegan-og andlegan þroska barna og unglinga. Einnig hvaða æfingar sé hentugt að notast við og hversu mikið álag á að vera í þjálfuninni hvað varðar þyngdir, lotur og endurtekningar. Einnig er athugað hvaða áhrif styrktarþjálfun hefur á framkvæmd tæknilegra atriða í knattspyrnu og hvort hægt sé að innleiða styrktarþjálfun í knattspyrnþjálfun til að fyrirbyggja meiðsli hjá börnum og unglingum.
Lykilorð; börn, unglingar, styrktarþjálfun, knattspyrna, meiðslahætta
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni. Hallur. PDF.pdf | 461,49 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |