Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/12507
Rannsóknin fjallar um samanburðarrannsókn á tæknilegri getu í knattspyrnu sem unnin var á vormánuðum ársins 2012. Próf voru framkvæmd á 15-17 ára drengjum í afrekshóp hjá félagsliði í Svíþjóð og borin saman við niðurstöður úr sömu prófum á 15-17 ára drengjum sem eru saman í liði hér á Íslandi. Skoðaður var mismunur í færni þáttakenda til þess að framkvæma sjö mismunandi tæknilega þætti. Að halda knetti á lofti, að skalla langt, að gefa nákvæma sendingu, að spyrna langt, að rekja knöttinn, að skora úr hornspyrnum og hitta markslána. Helstu niðurstöður voru þær að munur var á færni í spyrnulengd, knattraki og skothittni auk þess sem að þátttakendur úr sænska hópnum áttu besta árangurinn í sex af sjö prófum. Ég vonast til að verkefnið nýtist þegar kemur að umræðu um afreksstarf hér á landi auk þess sem að ég vona að fleiri framkvæmi samanburðarrannsóknir á tækni eða öðrum þáttum milli ólíkra hópa.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
B.sc ritgerðin.pdf | 756.85 kB | Open | Complete Text | View/Open |