Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/12657
Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að kanna það hvernig Tal standi í samanburði við samkeppnisaðila sína. Kannaður var markaðurinn út frá tölfræðiupplýsingum frá Póst- og fjarskiptastofnun og helstu kenningar varðandi samkeppnisforskot. Einnig var send út spurningakönnun til að kanna hvað neytendur eru að greiða fyrir fjarskiptaþjónustu í dag og hvaða þættir þeim þykja mikilvægastir þegar að kemur að vali á fjarskiptafyrirtæki.
Helstu niðurstöður ritgerðar þessarar sýna það að Tal getur farið í ýmsar markaðsaðgerðir til þess að auka hlutdeild sína á markaði. Fyrirtækið þarf þá að taka mið af kenningum um
samkeppnisforskot og með því aukið möguleika sína á aukinni markaðshlutdeild. Einnig sýna helstu niðurstöður að aðgreining Tals á ekki við í dag með innkomu nýrra aðila á markaði og
þurfa þeir því að aðgreina sig á nýjan hátt. Einnig sýna niðurstöður könnunar að þeir þættir sem neytendum þykja mikilvægir eru þeir þættir sem Tal hefur lagt niður við breytingu á viðskiptamódeli sínu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Bs ritgerð í viðskiptafræði Þórey Hallbergsdóttir.pdf | 4,79 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |