Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/12665
Áminningar eru nauðsynlegur þáttur í starfsmannastefnu Reykjavíkurborgar. Stundum þarf að grípa til aðgerða þannig að starfsmenn kunni að láta af hegðun eða athöfnum sem ekki ríma við starfsmannastefnu borgarinnar. Í þessari ritgerð verður fjallað um áminningarferli og hvort það sé virkt hjá stjórnendum Reykjavíkurborgar.
Fræðigrunnur ritgerðinnar byggist á mannauðsmálum og þáttum sem geta fyrirbyggt að stjórnendur þurfi að grípa til svo íþyngjandi ákvarðana eins og að áminna starfsmann. Ritgerðinn samanstendur af eigindlegri rannsókn sem byggðist á djúpviðtölum sem og innskotum frá fræðimönnum um tengd málefni.
Út frá rannsókninni ritgerðarinnar má álykta að áminningaferilið er notað af stjórnendum. Greint var frá hvaða brot voru algengust að mati viðmælanda. Viðmælendur gáfu greinagóðar lýsingar um þau áminningaferli sem þeir hafa þurft að takast á við í starfi og var niðurstaðan athyglisverð þegar kom að kyni og menntun starfsmanna sem hafa fengið áminningu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Adriana_Pétursdóttir_BSritgerð.pdf | 1,4 MB | Lokaður | Heildartexti | ||
VEFÚTGÁFA_Adriana_Pétursdóttir_BSritgerð.pdf | 1,27 MB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna |