Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1277
Unglingar hafa líkt og aðrir þegnar bæði réttindi og skyldur í því samfélagi sem vi
búum í. Þeir hafa rétt á því að taka þátt í félagsstarfi en jafnframt ber þeim skylda að
stunda nám til 16 ára aldurs.
Með því að kanna einkunnir unglinga og hvað þeir hafa fyrir stafni í frítíma
sínum er hægt að fá heildarmynd af virkni þeirra og tengslum við námsárangur.
Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort íþrótta- og tómstundaiðkun hafi
áhrif á námsárangur. Rannsóknir af þessu tagi hafa verið framkvæmdar hérlendis áður
en miklu umfangsmeiri. Til að fá svar við þessum spurningum gerðu rannsakendur
könnun meðal 8., 9. og 10. bekkinga í tveimur grunnskólum Akureyrarbæjar.
Niðurstöðurnar sýndu að nemendurnir sem tóku þátt í könnuninni voru
almennt duglegir að taka þátt í íþróttum og tómstundum. Einnig fannst í flestum
tilvikum marktæk fylgni milli íþrótta- og tómstundaiðkunar og námsárangurs. Er það í
samræmi við fyrri rannsóknir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
ithrottaogtom.pdf | 340.68 kB | Takmarkaður | Íþrótta- og tómstundastarf grunnskólanema - heild | ||
ithrottaogtom_e.pdf | 39.83 kB | Opinn | Íþrótta- og tómstundastarf grunnskólanema - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
ithrottaogtom_h.pdf | 46.75 kB | Opinn | Íþrótta- og tómstundastarf grunnskólanema - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
ithrottaogtom_u.pdf | 23.91 kB | Opinn | Íþrótta- og tómstundastarf grunnskólanema - útdráttur | Skoða/Opna |