Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/12827
Þetta verkefni fjallar um húfur og höfuðföt en hlutverk þeirra er margþætt og breytilegt og þá helst í tengslum við veðurfar, þ.e. til varnar kulda, hita og regni. Höfuðföt hafa einnig verið notuð við ýmis konar athafnir sem endurspeglast gjarnan í fatnaði þjóða. Viss tegund höfuðbúnaðar hefur verið notaður til þess að halda hári í ákveðnum skorðum, til skrauts og eftir tískustraumum.
Samkvæmt aðalnámskrá grunnskólanna er talað um að setja textílkennslu í félagslegt og sögulegt samhengi. Með því að leita í fortíðina og finna heimildir fyrir því hvernig höfuðföt fólk notaði á 18. öld og fram að okkar tímum getur verið áhugavert að fræða nemendur um ýmis höfuðföt sem notuð voru í þá daga um leið og nemendur vinna að sínum húfum.
Auk þessarar greinargerðar ætla ég að gera verkefnabók og taka þar saman hugmyndir fyrir húfugerð sem hægt er að nota í grunnskólum. Fjallað verður um hráefnin sem ég mun nota við gerð höfuðfatanna, þ.e. ullina sem hefur verið nýtt á Íslandi frá því að land var numið og flísefni sem mikið er notað í útivistarfatnað eins og húfur og peysur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Húfa, í fræðilegu og sögulegu samhengi..pdf | 602.1 kB | Lokaður til...02.05.2132 | Greinargerð | ||
Hvar er húfan mín, verkefnabók.pdf | 4.04 MB | Lokaður til...02.05.2132 | Heildartexti |