Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/12905
Í þessari ritgerð er reynt að leita skýringa á fjarveru samtímaljósmyndara í Íslenskri listasögu sem kom út árið 2011.
Hér er stiklað á stóru í íslenskri ljósmyndasögu og gerð tilraun til að tengja íslenskan listveruleika við skrif erlendra fræðimanna um efnið þar sem við á.
Safneign bæði Listasafns Íslands og Listasafns Reykjavíkur hefur farið stækkandi á undanförnum árum þegar kemur að verkum samtímaljósmyndara. Ljósmyndinni hefur verið gert hærra undir höfði eins og má meðal annars merkja af því að árið 2010 var Listahátíð í Reykjavík sérstaklega helguð ljósmyndinni. Sú þróun gaf annan tón en þann sem var látinn klingja þegar Íslensk listasaga var rituð.