Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1293
Þetta verkefni fjallar um greiningu á umhverfi og rekstrarmöguleikum fiskvinnslufyrirtækisins Dalmars ehf. Beitt var aðferðum stefnumótunar til að greina ytra og innra umhverfi félagsins og æskileg staðsetning þess á markaði fundin. Farið var yfir möguleika fyrirtækisins til hráefnisöflunar og samkeppnisstöðu þess á hráefnismarkaði. Nokkrir vinnslumöguleikar voru rannsakaðir með tilliti til framlegðar, framboðs af hráefni og mögulegrar sölu á afurðum. Niðurstöður greiningarinnar voru notaðar til að meta mögulega afkomu af rekstri fyrirtækisins ef farnar yrðu þær leiðir sem mælt er með. Næmnigreiningar varpa ljósi á það hversu mikil áhrif breytingar á ákveðnum rekstrarþáttum hefðu á afkomu.
Niðurstöður verkefnisins leiða í ljós að nauðsynlegt er fyrir fyrirtækið að aðgreina sig á markaði til að ná varanlegum samkeppnisyfirburðum. Aðgreining á markaðshillu er raunhæfasti kostur fyrirtækisins og er mælt með því að stjórnendur reyni að stækka markað fyrirtækisins fyrir sérvörur í samstarfi við SÍF hf. Samkvæmt niðurstöðum afkomumats má bæta afkomu félagsins verulega með því að leita markvisst að framleiðslumöguleikum sem gefa af sér meiri framlegð og leggja áherslu á framleiðslu og sölu þeirra afurða.
Lykilorð: Fiskverð, Dalmar, stefnumótun, fiskvinnsla, afkoma.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
dalmar.pdf | 610.48 kB | Takmarkaður | Dalmar - heild | ||
dalmar_u.pdf | 89.14 kB | Opinn | Dalmar - útdráttur | Skoða/Opna |