Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12962
Markmiðið með þessari grein er að sýna fram á hvernig verkefnastjórnunarlegar aðferðir geta stutt við breytingastjórnun hjá rekstrareiningunni Blue Lagoon spa á árunum 2011–2012. Fræðilega umfjöllunin í greininni er um hvernig má nota breytingastjórnunarverkfæri sem styðjast við stefnumiðað árangursmat innan smærri rekstrareininga og reynsla þess að koma því í framkvæmd á árangursríkan hátt. Líkanið sem stuðst var við í þessari grein, var samansett af fjórum víddum sem þóttu mest lýsandi fyrir starfsemina: innri verkferlar, starfsmenn og þróun skipulagsheildarinnar, þjónusta við viðskiptavini og fjármál. Í kafla fjögur er fjallað um beitingu aðferðafræðinnar. Í því samhengi voru gerðar tvær kannanir á tímabilinu: starfsánægjukönnun meðal starfsmanna og þjónustukönnun meðal viðskiptavina Blue Lagoon spa. Niðurstöður eru að lokum dregnar saman í lokaorðum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ásta_Pétursdóttir_MPM.pdf | 1.12 MB | Lokaður | Heildartexti |
Athugsemd: Trúnaðarmál.