Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/28623
Greinagerð þessi er hluti af lokaverkefni til B.Ed prófs við Kennaradeild Háskóla Íslands. Hér verður fjallað um skapandi hópverkefni sem er ein tveggja leiða til lokaverkefnis í kennaradeild. Þema verkefnisins er virðing fyrir kennarastarfinu sem valin var af nemendum. Virðing fyrir kennarastarfinu á Íslandi hefur tekið stakkaskiptum og er umfjöllun á frétta- og samfélagsmiðlum oft á tíðum á neikvæðu nótunum. Markmiðið með verkefninu er að sýna á myndrænan hátt það sem haft hefur áhrif á virðingu fyrir kennarastarfinu á Íslandi. Notaðar voru heimildir sem greina frá kjaramálum kennara, launakjörum, kynjahlutfalli og samfélagslegum aðstæðum við umfjöllun kennarastarfsins í fjölmiðlum og almenna umræðu, auk þess sem tekin voru viðtöl. Allar heimildir og gögn voru sett inn á opna rafræna tímalínu þar sem auðvelt er að nálgast upplýsingarnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
skapandi_lokaverkefni_b.ed._vor_2017.pdf | 373.34 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
skapandi_lokaverkefni_b.ed._vor_2017_vidaukar.pdf | 24.15 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
hópverkefni_yfirlýsing.pdf | 470.34 kB | Lokaður | Yfirlýsing |