Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1300
Fóðurkostnaður er stærsti kostnaðarþátturinn í eldi á þorski og prótein er dýrasti hluti af fóðrinu. Próteininnihald fóðurs og verð á próteini í fóðri skiptir því miklu mái fyrir framleiðslukostnað í þorskeldi. Í verkefninu var rannsakað hversu vel þorskur vex við mismunandi próteinsamsetningar í fóðri en það gæti skipt miklu máli hvað fóðurnýtingu varðar. Fiskinum í tilrauninni var skipt í 6 hópa og var hverjum hóp skipt í 3 eldisker. Fóðrað var allan sólarhringinn og innihélt tilraunafóður mismunandi hlutfall próteina, fitu og kolvetna. Ný aðferð var aðlöguð og notuð til mælinga á ammoníum, er hún einfaldari og hættuminni heilsu manna en sú aðferð sem notuð hefur verið í fiskeldisrannsóknum hérlendis.
Rannsakað var hvernig þorskurinn tæki fóðrið, hver útskilnaður hans væri við hverja fóðurtegund, vöxtur fisksins og heildarát. Niðurstaðan var sú að hvorki reyndist vera marktækur munur var á vexti fiska m.t.t. fóðurtegunda né m.t.t. súrefnisupptöku eða útskilnaðar á koltvíoxíði.
Til þess að tengja saman þau tvö svið sem verkefnið er unnið frá, voru umhverfisáhrif fiskeldis og reglugerðir hvað varðar umhverfismat og starfsleyfi einnig skoðuð. Reynt er að átta sig á þeim áhrifum sem fiskeldi getur haft á sitt nánasta umhverfi.
Lykilorð: Þorskur, eldi, fóður, vöxtur, umhverfisáhrif
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
fodurthorf.pdf | 1.05 MB | Takmarkaður | Fóðurþörf - heild | ||
fodurthorf_e.pdf | 155.87 kB | Opinn | Fóðurþörf - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
fodurthorf_h.pdf | 214.3 kB | Opinn | Fóðurþörf - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
fodurthorf_u.pdf | 154.99 kB | Opinn | Fóðurþörf - útdráttur | Skoða/Opna |