Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/13014
Í ritgerðinni er dýravelferð skoðuð, bæði frá siðfræðilegu sjónarhorni og sjónarhorni alhliða heilbrigðis búdýra í gegnum atferlis- og heilbrigðisrannsóknir. Aðstæður og meðferð íslenskra búdýra er bornin saman við ákveðna velferðarstaðla sem byggja á þekkingu á þörfum hverrar tegundar og atferli. Tilgangurinn er að draga upp mynd af stöðu dýravelferðar í íslenskum landbúnaði. Viðhorf íslenskra neytenda til siðrænnar neyslu eru skoðuð og leitast við að greina hvar Íslendingar standa miðað við nágrannaþjóðir okkar. Leitast er við að varpa ljósi á mikilvægi opinnar samfélagslegrar umræðu og sjálfsmyndar neytenda við mat á siðferðislegum málefnum. Umfjöllunin kallar á rannsóknir og mat á raunverulegri velferð búdýra hér á landi sem lifa við ólíka búskaparhætti. Einnig þarf að kortleggja viðhorf og þekkingu íslenskra neytenda á siðrænni neyslu og velferð búfjár í matvælaframleiðslu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Buddur og búpeningur.pdf | 403,94 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |