Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/13024
Í þessari ritgerð verður reynt að varpa ljósi á hvað að vera heima er og hvernig umræðan
er um þetta tiltekna. Að vera heima er margbrotið hugtak sem hægt er að skoða frá
mörgum sjónarhornum. Hægt er að líta á hugtakið sem stað, tilfinningu, táknrænt
fyrirbæri, öryggi, ást og fólk. Þannig mætti lengi telja. Að vera heima verður skoðað
útfrá fyrirbærafræði þar sem reynsla mannsins er skoðuð og hvernig þetta tengist
allt saman. Nálganir Bourdieu, Merleau-Ponty, Jackson verða athugaðar og ýmsir
fræðimenn verða nefndir. Reynt verður að svara álíka spurningum og hvað er að
vera heima? Hvað telur þú að að vera heima geri fyrir manneskju? Er það sagan sem
skiptir máli eða er það fólkið? Er að vera heima skilgreint af tilfinningu eða er það
eitthvað annað? Augljóst er að tenging á milli að vera heima og fjölskyldu er stór hluti
af hugtakinu og þess virði að skoða. Að vera heima er einnig skoðað hjá fólk með
mismunandi bakgrunn og hvað það er að gera, fyrir ferðamenn, innflytjendur og fleiri.
Að vera heima tengist einnig kyn og aldri, Julia Wardhaugh og fleiri komu inn á þann
útgangspunkt að vera heima breytist sífellt eftir reynslu, aldri og upplifun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð - Lára Rán Sverrisdóttir.pdf | 376.17 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |