Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1304
Við rannsóknarvinnu þessa verkefnis var leitast við að svara þeirri tilgátu skýrsluhöfundar að stjórnskipulag VSV hentaði vel rekstri fyrirtækisins. Sú aðferð sem notuð var við rannsóknina var þátttökuathugun, skoðuð fyrirliggjandi gögn, óstöðluð viðtöl tekin við lykilstjórnendur og lagður fyrir spurningalisti. Þátttakendur voru allir starfsmenn VSV.
Greining á margvíslegum gögnum leiddi í ljós að skipulag VSV var starfaskipulag. Helstu niðurstöður má túlka þannig að núverandi skipulag VSV sé ekki besta skipulagsformið fyrir starfsemi fyrirtækisins og það henti ekki ytra rekstrarumhverfi þess. Ýmis vandamál komu í ljós við núverandi skipulag og tillaga var gerð um að skipulagi yrði breytt í fléttuskipulag.
Lykilorð:
● Stjórnskipulag
● Formgerð
● Upplýsingaflæði
● Stigveldi
● Ákvarðanataka
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
skipulagVSV.pdf | 480.17 kB | Lokaður | Skipulag - heild | ||
skipulagVSV_e.pdf | 108.22 kB | Opinn | skipulag - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
skipulagVSV_h.pdf | 161.97 kB | Opinn | Skipulag - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
skipulagVSV_u.pdf | 118.64 kB | Opinn | Skipulag - útdráttur | Skoða/Opna |