is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1305

Titill: 
  • Hvaða áhrif hefur menntun á laun fólks?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Efnisorð: 
Útdráttur: 
  • Fyrstu vikur janúarmánaðar fór fram rannsókn í formi gagnaöflunar þar sem leitast var við að svara rannsóknarspurningunni sem lagt var upp með í byrjun. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að rannsaka hvaða áhrif menntun hefði á laun fólks.

    Mælitækið, sem notast var við, voru gögn Kjararannsóknarnefndar og Kjararannsóknarnefndar opinberra starfsmanna á fimm starfsstéttum sem valdar voru af höfundi og deildarstjóra Launa- og kjaradeildar Hagstofu Íslands. Við undirbúning rannsóknarinnar var markmiðið að fá fram niðurstöðu um hvort það borgar sig að mennta sig í dag og hvaða önnur gildi menntun hefur fyrir einstaklinginn.
    Meginniðurstöður voru þær að menntun hefur áhrif á laun fólks. Heildarævitekjur eru hærri eftir því sem menntun er meiri þó svo að tekið sé tillit til fórnarkostnaðar við að afla sér menntunar. Einnig kemur fram að það eru önnur gildi sem fólk er að sækjast í með því að mennta sig, því samkvæmt rannsóknum eru vinnuaðstæður, starfsandi, virðing fyrir starfi og margt annað jákvæðara eftir því sem menntunin er meiri. Ljóst er af niðurstöðum rannsóknarinnar að menntun borgar sig þegar tekið er tillit til launa og annarra félagslegra og atvinnulegra þátta eins og staðan er í dag.

    Lykilorð:
    Menntun
    Laun
    Innri vextir - IRR
    Gildi menntunar
    Atvinnuástand

Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1305


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
menntunlaun.pdf405,1 kBOpinnMenntun og laun - heildPDFSkoða/Opna