Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/13181
Markmið þessa verkefnis var að sjá fyrir þróun safnaðarstarfs með því að nota eina aðferð framtíðarfræðanna, sviðsmyndaaðferðina. Aðal hugðarefni var þróun safnaðarstarfs í Keflavíkurkirkju. Í verkefninu var reynt að útskýra eigindi sviðsmyndaaðferðarinnar, grundvallaratriði sviðsmyndaáætlunar og ágæti sviðsmyndaaðferðarinnar við að skoða breytingar og þróun í safnaðarstarfi.
Í fræðilega hluta verkefnisins var gerð grein fyrir nokkrum fræðilegum rannsóknum á trúarlegum skipulagsheildum og hvað ýtir undir virkni safnaða og ástæður samdráttar í aðsókn að kirkjum og starfi þeirra.
Í reynsluhluta verkefnisins voru fjórar mismundandi sviðsmyndir dregnar upp af framtíð safnaðarstarfs í Keflavík. Sviðsmyndirnar voru grundvallaðar á núverandi þekkingu og umræðu sjálfboðaliða í Keflavíkurkirkju og íbúa í Keflavík með þátttöku í sviðsmyndavinnustofu. Í mótun sviðsmyndanna var stuðst við blöndu eigindlegra og megindlegra þátta. Hinar 4 mótuðu sviðsmyndir gefa til kynna að kirkjan verður að vera árvökul og virk í að þróa framtíð sína til að geta gripið og nýtt sér þau tækifæri sem framtíðin mun færa henni.
Lykilorð: Stjórnun og stefnumótun, sviðsmyndagreining, framtíðafræði, sviðsmyndi
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Kristinn Thor Jakobsson Meistararitgerd.pdf | 1.38 MB | Open | Heildartexti | View/Open |