Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13233
Norðan við Borgarnes er svæði sem býður upp á mikla möguleika hvað varðar áhugverðar
gönguleiðir. Þar er golfvöllur sem þykir með þeim bestu á landinu og þaðan er ákaflega
fallegt útsýni t.d að Hafnarfjalli, Skarðsheiði og Skessuhorni. Hinum megin við þjóðveginn
er hesthúsahverfi og ofan við það er ágætis útsýni í vestur og þar sjást vel þær klettaborgir
sem eru einkennandi fyrir svæðið. Nær bænum er Borg á Mýrum sem er sögulegur staður í
fallegu umhverfi og þaðan er skemmtilegt útsýni yfir Borgarnes.
Hér verður gerð tillaga að gönguleið um þessi svæði til að auka tækifæri fólks til að
stunda hreyfingu nálægt heimili sínu auk þess að fræðast um svæðið og einkenni þess.
Markmiðið er að hanna þrjá áningarstaði á þessari gönguleið þar sem hver staður tengist sínu
nánasta umhverfi, það er náttúrunni, sjónlíum, sögunni og þess háttar. Með þessum
gönguleiðum væri hægt að auka áhuga og þekkingu íbúa Borgarness sem og ferðamanna á
þessu fallega svæði með upplýsingaveitum eða frásögnum tengdum nærumhverfinu á hverjum
áningarstað fyrir sig.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Bs-EyglóKristjánsdóttir.pdf | 11.63 MB | Opinn | Skoða/Opna |