Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/13248
Skýrsla þessi fjallar um rannsókn, greiningu og lausn á rekstrarvandamáli sem hrjáð hefur vélasamstæður 1 og 2 við Andakílsárvirkjun. Virkjunin er vatnsaflstöð í eigu Orkuveitu Reykjavíkur og er önnur af tveimur vatnsaflsstöðvum sem Orkuveitan rekur.Rekstrarvandinn lýsir sér í óróa á sogþrýstingi vélanna sem leiðir af sér að ekki er hægt að keyra vélanar nema á þröngu aflsviði vélanna án þess að vandinn geri vart við sig. Höfundur rannsakar og reynir að nálgast og greina þennan vanda og koma með lausn á honum. Lausnin er sjálfvirkar bakvatnslokur staðsettar í frárennslisrásum vélasamstæðanna. Hlutverk þessara loka er að regla sogþrýstinginn með því að hækka eða lækka hæðina í frárennslisrásunum. Lokurnar verða keyrðar af vökvatjökkum og munu þær deila sameiginlegri dælustöð. Iðntölva sér svo um að regla sogþrýstinginn með hliðsjón af afli vélar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni Véliðnfræði 2011-bakvatnslokur.pdf | 4,63 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |