is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13265

Titill: 
  • „Maður bíður meira eftir þrettándanum en eftir jólunum!“ Form, hlutverk og þróun þrettándans í Vestmannaeyjum
  • Titill er á ensku “I always look more forward to Twelfth night than Christmas.” Structure, Function and Development of Twelfth Night in Westman Islands
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er form, hlutverk og þróun þrettándans í Vestmannaeyjum kannaður út frá kenningum um sviðslist. Eftirfarandi ritgerð er skipt upp í fimm kafla. Í fyrsta kaflanum er gert grein fyrir rannsóknarefninu og þeim rannsóknaraðferðum sem notaðar voru. Einnig verður lítillega farið yfir fyrri rannsóknir annarra fræðimanna á þessu sviði bæði erlendis og hérlendis. Í öðrum kafla verða þær kenningar sem notaðar verða í ritgerðinni kynntar. Í þriðja kafla verður saga þrettándans rakin, eða þeir siðir sem hafa verið við lýði við lok jólatímabilsins, bæði erlendis og hérlendis, og að lokum í Vestmannaeyjum. Þar hefur þessum tímamótum verið fagnað með dulbúningar- og heimsóknarsið, blysför, álfadansi, jólasveinum og loks tröllum og púkum. Í fjórða kafla verður form hátíðahaldanna rannsakað út frá kenningum um sviðslist og hlutverk hennar eða virkni gerð skil. Jafnframt verður gert grein fyrir þróun hátíðahalda þrettándans í Vestmannaeyjum fram til dagsins í dag. Að síðustu verða hátíðahöld þrettándans í Vestmannaeyjum greind í ljósi þeirra kenninga sem þá hafa verið raktar

Samþykkt: 
  • 5.10.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13265


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA ritgerd_Hrefna Díana Viðarsdóttir_Skemman.pdf2.45 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna