Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/13275
Í þessari ritgerð eru skoðuð gæði neysluvatns og staða vatnsverndar á Íslandi. Þetta er gert með því að gera úttekt á vatnsgæðum hjá tuttugu vatnsveitum m.t.t.efnafræðilegra þátta, skoða lagaramma og hvernig vatnsvernd er tryggð í lögum og skoða hættu á mengun og sjúkdómum sem berast með vatni. Farið er yfir nokkra vatnsborna faraldra bæði innanlands og utan.
Helstu niðurstöður eru þær að neysluvatn á Íslandi hjá þeim vatnsveitum sem skoðaðar eru fullnægir alltaf kröfum um gæði efnafræðilegra þátta. Við tölfræðigreiningu kemur í ljós aukning á nítrati á þeim vatnsverndarsvæðum þar sem stundaður er landbúnaður og ræktun. Við skoðun á löggjöf er varðar vatnsvernd kemur fram að bann við mengun vatns er afdráttarlaus í íslenskri löggjöf en ýmislegt vantar á eftirfylgni og eftirlit sérstak¬lega með minni vatnsveitum. Einnig var skoðuð þróun á sex ára tímabili í framkvæmd löggjafarinnar um vatnsvernd með samanburði við könnun gerða af Umhverfisstofnun árið 1997. Nokkuð hefur miðað í að skilgreina vatnsverndarsvæði en sama var ekki að segja um starfsemi á verndarsvæðum sem hafði aukist töluvert á þessum sex árum. Við skoðun á hópsýkingum af völdum mengaðs neysluvatns kom í ljós að nauðsynlegt er að bæta skráningu og eftirfylgni til að læra af reynslunni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Neysluvatnsgæði_jan2005_2.pdf | 526,08 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |