en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

Agricultural University of Iceland > Auðlindadeild (2005-2016) > B.S. verkefni - Auðlindadeild >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/13291

Title: 
  • Title is in Icelandic Breytingar á þykkt langa bakvöðva íslenskra hesta í gegnum frumtamningu og grunnþjálfun
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Viðfangsefni verkefnisins var að kanna hvort og hvernig þykkt langa bakvöðvans breytist hjá íslenskum hestum í gegnum frumtamningar- og grunnþjálfunartímabilið. Rannsóknin fór fram við Háskólann á Hólum. Notaðir voru 38 hestar sem komu í tamningu á Hólum og voru tamin undir leiðsögn kennara af nemendum skólans á öðru ári í B.Sc. námi í reiðmennsku og reiðkennslu. Hestarnir voru á aldrinum fjögurra til sex vetra en stærsti hópurinn, eða 25 hross, voru fjögurra vetra. Þykkt langa bakvöðvans var mæld með sónartæki á fjórum stöðum. Milli 10. og 11. rifbeins og milli 17. og 18. rifbeins, bæði hægra og vinstra megin við hryggsúluna. Sónarmælingar voru gerðar tvisvar sinnum; í upphafi og í lok frumtamningar. Einnig var brjóstummál hestanna mælt í upphafi og lok frumtamingar og í lok grunnþjálfunar. Löngu baköðvarnir stækkuðu á frumtamningartímabilinu en þykktaraukningin var ekki marktæk í heild sinni. Munurinn á vöðvaþykkt milli hægri og vinstri hliðar reyndist ekki vera marktækur í heild sinni en var marktækur í fyrstu mælingum á fremri mælistað (p=0,0327). Engin fylgni reyndist vera milli brjóstummáls og breytinga á vöðvaþykkt langa bakvöðvans.

Description: 
  • Description is in Icelandic Útskrift frá:
    Háskólanum á Hólum - Hestafræðideild
    Landbúnaðarháskóla Íslands - Auðlindadeild
Accepted: 
  • Oct 16, 2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13291


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
BS_riterð_Carmen Kull_Breytingar á þykkt langa bakvöðva íslenskra hesta í gegnum frumtamningu og grunnþjálfun.pdf654,83 kBOpenPDFView/Open