Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/13298
Síðustu ár hefur færst í vöxt á Íslandi að nota hlaupabretti (hlaupabretti án vatns og vatnsbretti) við þjálfun hesta og þá sérstaklega afkastamikilla hesta. Hins vegar er lítið vitað um áhrif þjálfunarinnar á íslenska hestinn en engar rannsóknir þess efnis hafa verið birtar sérstaklega fyrir hann.
Markmið verkefnisins var að kanna hvernig hestaþjálfarar á Íslandi sem hafa aðgang að hlaupabretti nýta það við þjálfun sína og hvaða þekking liggur þar að baki. Einnig að meta það líkamlega álag sem er á hestunum við slíka þjálfun.
Gagnasöfnun fór þannig fram að heimsóttar voru sex tamninga- og þjálfunarstöðvar á Íslandi sem eiga og nota hlaupabretti fyrir hesta. Þar voru gerðar mælingar á líkamlegu álagi á 23 íslenskum hestum á aldrinum 4-17 vetra við þjálfun á hlaupabretti. Á meðan hver hestur var þjálfaður á hlaupabrettinu var hjartsláttartíðni hans mæld, auk þess sem hún var mæld í fimm mínútur eftir að þjálfun lauk, til að fylgjast með hvernig og hversu fljótt hesturinn jafnaði sig eftir þjálfunina. Öndunartíðni hvers hests var talin fyrir og eftir þjálfun hans á brettinu, ásamt því að líkamshiti hvers hests var mældur fyrir og eftir þjálfun hans á brettinu. Spurningalisti var lagður fyrir eiganda/þjálfara tamninga- og þjálfunarstöðvarinnar við komuna á staðinn, sem hann svaraði meðan á heimsókn stóð.
Niðurstöður benda til að ekki sé mikið álag á hestum við þjálfun á hlaupabretti hérlendis.
Þá virðast þjálfarar ekki vera að nýta brettin til fulls við þjálfun vegna skorts á vitneskju um hvaða áhrif það muni hafa á hestinn. Við þjálfun á brettinu leggja þjálfarar megináherslu á að hesturinn beiti sér rétt í stað þess að hann fari á sem mestan hraða.
Brýnt er vegna vaxandi notkunar á hlaupabrettum við þjálfun að áhrif þeirra á íslenska hestinn verði rannsökuð. Til að þjálfarar geti notað brettið sem markvissast þurfa þeir á meiri vitneskju að halda.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_ritgerð_Ragnhildur Anna Ragnarsdóttir.pdf | 757,77 kB | Opinn | Skoða/Opna |