is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Auðlindadeild (2005-2016) > B.S. verkefni - Auðlindadeild >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/13300

Titill: 
  • Samband ómmældrar fituþykktar á síðu og holdastigs hrossa
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið rannsóknarinnar var að kanna samband mældrar fituþykktar undir húð á síðu hrossa og holdastigs þeirra, leggja mat á samband síðufitu og holdastigs hjá lífeðlisfræðilega ólíkum hópum hrossa og að kanna áhrif raksturs mælistaða á ómmælingar.
    Ómmæld voru 70 hross í heildina. 51 reiðhestur, 12 trippi og 7 folaldshryssur. Öll hrossin voru holdstiguð og fituþykktarmælingar teknar á tveimur stöðum í síðu þeirra. Fremri mælistaður var 5 cm aftan við herðablað mitt á milli olnboga og miðlínu baks. Aftari mælistaðurinn var yfir 16. rifi í sömu hæð og sá fremri. Allar folaldshryssur og trippi voru vigtuð auk 30 reiðhesta. Til að meta áhrif raksturs á niðurstöður ómmælingar voru notaðir 16 reiðhestar.
    Fituþykkt á síðu sýndi ágæta fylgni við holdastig reiðhesta (p<0.05). Fylgni fituþykktar og holdastigs trippa og folaldsmera var ómarktæk (p>0.05). Fituþykkt aftari mælistaðar sýndi hærri fylgni við holdastig en fituþykkt fremri mælistaðar hjá reiðhestum og folaldsmerum en því var öfugt farið hjá trippunum. Lág fylgni var á milli þyngdar og holdastigs trippa og folaldsmera en meðalfylgni hjá reiðhestunum. Ekki var marktækur munur (p>0.05) á fituþykktar mælingum fyrir og eftir rakstur. Minni fituþykkt (p<0.05) reyndist á báðum mælistöðum trippa í holdastigi 3 miðað við reiðhesta í holdastigi 3. Folaldsmerar í holdastigi 3 voru með minni (p<0.05) fituþykk á aftari mælistað miðað við reiðhesta í sama holdastigi.
    Samkvæmt íslenska holdstigunarkvarðanum hefur fituþykkt á síðu mikið að segja um í hvaða holdastig hestar eru stigaðir, þá sérstaklega fituþykkt yfir öftustu rifbeinum. Fituþykkt á síðu virðist vera gott spágildi fyrir holdastig reiðhesta en ekki er víst að íslenski holdstigunarskalinn henti jafn vel til holdstigunar trippa og folaldsmera.

Athugasemdir: 
  • Athugasemdir er á óskilgreindu tungumáli Útskrift frá:
    Háskólanum á Hólum - Hestafræðideild
    Landbúnaðarháskóla Íslands - Auðlindadeild
Samþykkt: 
  • 16.10.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13300


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Samband ómmældrar fituþykktar og holdastigs hrossa.pdf874,64 kBOpinnPDFSkoða/Opna