Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/13315
Fjallað verður um eigindlega rannsókn þar sem meginmarkmiðið er að afla þekkingar á upplýsingahegðun aldraðra og aðstandenda þeirra í tengslum við breytingar sem verða á heilsufari og aðstæðum aldraðra við hækkandi aldur. Alþjóðlega eru mjög fáar rannsóknir til um upplýsingahegðun aldraðra og einnig er afar lítil þekking á því hvernig aðstandendur þeirra styðja við hana. Því er brýnt að auka þekkingu á þessu sviði.
Í erindinu og greininni verður lögð áhersla á þátt aðstandenda í rannsókninni. Tekin voru opin viðtöl við 14 aðstandendur, níu konur og fimm karla á aldrinum 37 til 74 ára, sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu, í dreifbýli og í kaupstað úti á landi. Fjallað verður um niðurstöður varðandi það hvernig þeir styðja við upplýsingaþörf aldraðra, hvar og hvernig þeir afla upplýsinga og hindranir sem þeir telja að séu fyrir hendi. Ennfremur hvernig þeir upplifa hlutverk sitt sem aðstandendur sem stuðla að því að aldraðir fái upplýsingaþörfum sínum fullnægt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Agusta_Palsdottir_Aldradir og adstandendur.pdf | 494,61 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |