Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1339
Skýrslan er lokaverkefni til B.Sc. gráðu í rekstrarfræðum við Háskólann á Akureyri.
Hér er fjallað um mælingu þekkingarverðmæta í fyrirtækjum, hvaða aðferðir þau eru að nota og mismunandi aðferðafræði sem liggur þar að baki.
Aðferðafræðina “Þekkingarverðmæti” er rannsökuð sérstaklega en hún gengur mjög langt í því að greina þekkingarverðmæti niður í óáþreifanlegar auðlindir og virk ferli.
Aðferðafræðin “Þekkingarverðmæti” er prófuð á þekkingarfyrirtækið MEKKA – tölvulausnir ehf. í nánu samstarfi við starfsmenn fyrirtækisins.
Þrjár rannsóknarspurningar eru settar fram:
Hvaða mæliaðferðir má nota við mat á óáþreifanlegum eignum fyrirtækja?
Hvernig er hægt að setja saman mæliaðferðir sem henta til mats á óáþreifanlegum eignum MEKKA með aðferðarfræði “Þekkingarverðmæta”?
Er hægt að ætla að mæliaðferðir “Þekkingarverðmæta” henti við mat á þekkingarauðlindum hjá litlum íslenskum fyrirtækjum?
Helstu niðurstöður voru að þær aðferðir sem kynntar voru koma allar vel til greina við mat á óáþreifanlegum auðlindum fyrirtækja. Það er grundvallaratriði að skoða hlutfallslegt mikilvægi mannauðsins þegar aðferðafræði er valin og hlýtur að vera sérstaklega mikilvægt fyrir þekkingarfyrirtæki að geta metið þessar auðlindir á markvissan og trúverðugan hátt. Aðferðafræði “Þekkingarverðmæta” leiddi til áhugaverðrar niðurstöðu á því hvernig hægt væri að meta og mæla þá þætti sem eru mikilvægir fyrir MEKKA. Það kom í ljós að ýmislegt þarf að bæta í upplýsingaskráningunni og mótun á skýrari stefnu til að hægt væri að innleiða slíka aðferðafræði hjá MEKKA. Þetta bendir til þess að aðferðafræðin henti íslenskum fyrirtæki af öllum stærðargráðum sem hafa skýra stefnu, gott upplýsingakerfi og gera sér grein fyrir mikilvægi þessara verðmæta í fjárhagslegri afkomu.
Lykilorð:
Þekkingarverðmæti
Mannauður
Óáþreifanleg verðmæti
Skipulagsauður
Mælistikur
Tengslaauður
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
maelingthekkingarv.pdf | 1.32 MB | Takmarkaður | Mæling þekk - heild | ||
Kristín Dóra Þorsteinsdóttir_fylgiskjöl.pdf | 770.18 kB | Takmarkaður | Mæling þekk - fylgiskjöl | ||
Katrín Dóra Þorsteinsdóttir_e.pdf | 98.76 kB | Opinn | Mæling þekk - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Katrín Dóra Þorsteinsdóttir_h.pdf | 161.3 kB | Opinn | Mæling þekk - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Katrín Dóra Þorsteinsdóttir_u.pdf | 155.52 kB | Opinn | Mæling þekk - útdráttur | Skoða/Opna |