Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13547
Viðfangsefni þessarar ritgerðar er áhugahvöt nemenda og gerð var eigindleg rannsókn. Rannsóknin sjálf var gerð í mars mánuði 2011 og fól hún í sér viðtöl við sjö framhaldsskólanema sem allir höfðu lokið meira en helmingnum af námi sínu í framhaldsskóla. Allir viðmælendurnir voru nemar við sama skólann. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvaða þættir hafa námslega hvetjandi áhrif á nemendur. Megin niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að fjölmargir þættir hafa áhrif á námslega hvatningu nemenda, en þar er einna helst að nefna persónulegan áhuga nemenda og ýmsa ytri hvatningu, til dæmis einkunnir, ásamt fjölda annarra þátta.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
forsíða_ArnarSigurgeirsson_M.Ed..pdf | 65.62 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
áhugahvöt_og_nám_ArnarSigurgeirsson_M.Ed..pdf | 380.24 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |