en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/13723

Title: 
  • Title is in Icelandic Virðisaukaskattur í ferðaþjónustu
  • Value Added Tax in the Tourism Industry
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Vöxtur í ferðaþjónustu hefur verið gríðarlegur síðustu misseri og hefur atvinnugreinin skapað sér mikilvægan sess meðal atvinnugreina á Íslandi. Ferðaþjónustan er orðin þriðji stærsti útflutningsaðili Íslendinga og skapar gríðarlegt magn af gjaldeyristekjum fyrir þjóðarbúið.
    Skattlagning í ferðaþjónustu hefur mikið verið í umræðunni undanfarið með tíðum skattahækkunum og tilkomu nýrra skatta. Flækjustig virðisaukaskattsumhverfis í ferðaþjónustu er gríðarlega mikið hvað varðar ákvarðanir um hvaða vara og þjónusta er undanþegin skatti og hvað fellur undir skattskylduna og þá hvernig. Sama þjónusta getur verið seld á mismunandi skattþrepum eftir því hvaða aðstæður eiga við hverju sinni. Farið verður ítarlega í umhverfi virðisaukaskatts og þá sérstaklega þann hluta sem snýr að gistiþjónustu, afþreyingu og fólksflutninga.
    Eftir birtingu fjárlagafrumvarps 2013 með fyrirhuguðum skattahækkunum á gistiþjónustu ætlaði allt um koll að keyra og voru skoðaðar tvær mismunandi skýrslur um áhrif skattahækkana. Annarsvegar skýrsla sem Samtök ferðaþjónustunnar fengu KPMG til að framkvæma og hinsvegar skýrsla sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands framkvæmdi fyrir fjármálaráðuneytið. Niðurstöður þessara tveggja skýrslna stangast á þar sem að KPMG telur atvinnugreinina ekki standa undir sér, í þeirra mynd sem hún er í dag, ef skattahækkunin verður að veruleika en niðurstaða Hagfræðistofnunar er sú að núna sé rétti tíminn til þess að hækka skatta.
    Ritgerðinni er ætlað að vekja athygli á mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir efnahagslíf Íslendinga og möguleikum á áframhaldandi rekstrahæfi ferðaþjónustufyrirtækjanna. Í lok lestur ritgerðarinnar vonast ég eftir að hið háa flækjustig virðisaukaskattsumhverfisins verði lesandanum skýrara ásamt því að varpa ljósi á vöntun á skýrari lagasetningu á skattlagningu virðisaukaskatts innan atvinnugreinarinnar.

Accepted: 
  • Jan 11, 2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13723


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
BS ritgerð - Elin Palmadottir.pdf593.82 kBOpenHeildartextiPDFView/Open