is Íslenska en English

Grein

Háskólinn á Bifröst > Rafræn tímarit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/13782

Titill: 
  • Meðalkostnaður íslenskra sveitarfélaga : fjöldi íbúa og sameining sveitarfélaga
Útgáfa: 
  • Nóvember 2012
Útdráttur: 
  • Í rannsókn þessari var breytileiki á meðalkostnaði í rekstri sveitarfélaga á Íslandi til skoðunar í þeim tilgangi að varpa ljósi á hvort meðalkostnaður sveitarfélaga geti lækkað við sameiningu þeirra. Ef stærðarhagkvæmni er í rekstri sveitarfélaga er mögulegt að þetta gerist. Sýnt hefur verið fram á í ýmsum erlendum rannsóknum að stærðarhagkvæmni er til staðar í rekstri sveitarfélaga. Hér verður kannað hvort fjölmennari sveitarfélög hafi lægri meðalkostnað en þau fámennari og skoðað hvort sameining sé líkleg til að skila hagræðingu. Horft verður til ellefu mismunandi málaflokka sveitarfélaga. Notuð voru gögn allra sveitarfélaga (79) á Íslandi fyrir árið 2006 yfir nokkra lykilþætti. Kannað var sérstaklega hvort víðfeðmi sveitarfélags, fjöldi þéttbýla og fjarlægð frá höfuðborginni hefðu marktæk áhrif á meðalkostnað viðkomandi málaflokka. Aðferð minnstu fervika var beitt. Niðurstaðan var sú að meðalkostnaður fjölmennari sveitarfélaga er lægri en þeirra fámennari í fáeinum málaflokkum og hagræðing gæti því náðst við sameiningu. Veikleikar voru í niðurstöðunum, þó síst hvað varðar yfirstjórn í rekstri sveitarfélaga.

  • Útdráttur er á ensku

    This study investigates how the per capita costs for municipalities in Iceland vary in order to be able to suggest whether overall costs will decrease when municipalities merge. Such a decrease is a possibility if municipal operations are subject to economies of scale. Various studies have shown that this is the case, at least in other countries. We ask whether municipalities with a larger population operate more cost-efficiently and thus whether mergers might be likely to result in reduced municipal expenses. Eleven different categories of municipal expenses were examined. The data used was for all 79 Icelandic municipalities in the year 2006. In particular, we looked to see whether the land area of a municipality, the number of settlements with in it, and the municipality’s distance from Reykjavík (the capital of Iceland) had a significant influence on the per capita expense in each category. The least-squares method was used. Our finding was that for a few of the expense categories, the per capita cost in the more populous municipalities was lower than that in the less populous municipalities, and thus that mergers could result in cost savings. There were some weaknesses in the results, but at least in the case of overhead costs the findings were relatively clear.

Birtist í: 
  • Bifröst Journal of Social Science / Tímarit um félagsvísindi. 2011-12, 5-6(1) : 73-85
ISSN: 
  • 1670-7796
Athugasemdir: 
  • Ritrýnd grein
Samþykkt: 
  • 15.1.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/13782


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Vífill Karlsson og Elías Árni Jónsson -- Meðalkostnaður íslenskra sveitarfélaga.pdf394.26 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna