Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/13959
Nokkur þekkt vandamál hafa verið viðloðin framleiðslu á steyptum afurðum sem kallaðar eru melmisstangir, úr HDC vél ALCOA Fjarðaáls. Þessi vandamál hafa verið til staðar í talsverðan tíma og er handstöflun melmisstanganna eitt af þeim.
Þegar vandamál eins og óvæntar bilanir koma upp í búnaði sem sér um eftirvinnslu og flutning melmisstanganna á framleiðslusvæði vélarinnar, getur það leitt til þess að beina þurfi stöngunum tímabundið eftir öðrum óhefðbundnum framleiðsluleiðum.
Það hefur þær afleiðingar í för með sér að taka verður við þeim og fjarlægja á handvirkann máta svo þær safnist ekki upp á einn stað.
Þessu valda bilanir og önnur vandamál í búnaði sem þjónustar þær.
Markmið verkefnisins er að greina helstu vandamál í framleiðsluferli melmisstanga og setja fram úrbótatillögu í formi vélbúnaðar sem mögulega er hægt að koma fyrir á stað inn í framleiðsluferli melmisstanganna og leysir þau helstu vandamál sem skilgreind verða við framvindu verkefnisins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BSc lokaverkefni skýrsla.pdf | 60,43 MB | Lokaður til...01.01.2130 | Heildartexti | ||
BSc lokaverkefni Viðauki.pdf | 14,87 MB | Lokaður til...01.01.2133 | Viðauki |
Athugsemd: Lokaverkefnið er í tveimur hlutum, skýrsla og viðaukar. Skýrsla skal vera ótímabundið lokuð ásamt viðaukum en viðaukar eru trúnaðarmál.