Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/13962
Meginmarkmið þessa verkefnis er að komast að því hvað ásvindmyllan, sem Jón E. Bernódusson hannaði, getur afkastað miklu afli. Byrja þarf á því að hanna og smíða styrkingar á vindmylluna þar sem hún þolir ekki vindálag við mikinn
vindstyrk. Framkvæmdar verða mælingar á ásvindmyllunni í vindgöngum Háskólans í Reykjavík ásamt því að farið verður með hana austur í Þykkvabæ og teknar aflmælingar á henni þar. Niðurstöður aflmælinga í vindgöngunum og niðurstöður mælinga í
Þykkvabæ verða svo bornar saman. Einnig verður fræðilegt afl ásvindmyllunnar skoðað og borið saman við mesta fræðilega afl
sambærilegra vindmylla.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greining á ásvindmyllu í vindálagi til orkuframleiðslu.pdf | 22,21 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |