Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1399
Í ritgerðinni er fjallað um kennslu Íslendingasagna og mikilvægi þess að halda þeim sem kennsluefni inni í grunnskólum. Námsefni er kannað og námskrár skoðaðar og rýnt í samræmd próf. Að því loknu er rætt um Íslendingasögurnar sjálfar og heimildagildi þeirra. Sú saga sem við tókum sérstaklega fyrir er Laxdæla og við sýnum fram á að í henni er ýmis fróðleikur sem hægt er að nýta í kennslu. Við berum Laxdælu saman við Landnámu, ræðum goðsögulegt ívaf, skoðum byggingu sögunnar og veltum því fyrir okkur hvort höfundur hennar gæti hafa verið kona.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Bjarney_Thorunn_Heildarskjal.pdf | 378,38 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |