Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/14035
Greinagerð þessi fylgir námsspili sem ber heitið Bakpokinn. Spilið er ætlað sem kennslugagn fyrir kennara til þess að fræða, skapa umræður og vekja áhuga grunnskólanemenda á mismunandi menningarheimum og jafnframt auka víðsýni nemenda. Spilið er ætlað 14-16 ára nemendum. Við gerð spilsins var tekið viðtal eða spurningar lagðar fyrir fimmtán aðila frá fimmtán mismunandi löndum um menningu hvers og eins.
Í greinargerðinni er fjallað almennt um menningu í fræðilegum skilningi sem og því fjölmenningarsamfélagi sem við búum í. Þá er einnig fjallað um þær ýmsu kennsluaðferðir sem hægt er að nota samhliða námsspilinu í fjölmenningarlegum nemendahópi. Fjallað er um námskrá grunnskóla, námsspilið og hvernig það nýtist við kennslu. Að lokum er umfjöllun um spilið sjálft, markmið þess, vinnuferlið og leikreglur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð heildartexti.pdf | 441,86 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Borðspilið.jpg | 2,83 MB | Opinn | Viðauki | JPG | Skoða/Opna |