Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/14098
Gjaldfrjálsir leikskólar með jafnréttislegri nálgun er umfjöllun um þá þætti sem tengja saman dagvistunar og jafnréttismál. Umfjöllun sýnir markvisst fram á tengingu þessara þátta og hvernig dagvistun ungra barna getur haldið aftur af jafnrétti kynjanna ef ekki er gripið inn í. Í ritgerðinni er bæði fjallað um hugmyndafræði velferðarkerfis og verkfæri sem nota má til að vinna úr vandanum. Þá er stiklað á samanburði ólíkra leiða við niðurgreiðslu dagvistunar fyrir ung börn. Þessar ólíku leiðir geta hver um sig haft áhrif á atvinnuþátttöku og þá sérstaklega atvinnuþátttöku kvenna. Að lokum er því haldið fram að gjaldfrjáls leikskóli ætti að vera eitt af megin markmiðum velferðarhagkerfis sem kenni sig við jafnrétti.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA_HildurBjorgVilhjalmsdottir.pdf | 330.53 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |