Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14114
Að fjárfesta í fasteign er stór ákvörðun. Þegar ráðist er í slík kaup ráðast væntingar kaupanda að miklu leyti af hefðum og venjum. Fylgifé fasteigna byggir t.a.m. á áratugavenju. Þá gengur
kaupandi út frá því að fasteign hafi þá eiginleika sem leiðir af lögum og þeim upplýsingum sem koma fram í söluyfirliti. Fasteignasala ber að útbúa slík söluyfirlit og ber hann skyldur
þegar kemur að gerð þeirra. Kaupandi á að geta treyst því að þær upplýsingar sem þar koma fram séu réttar.
Í þessari ritgerð mun ég fara yfir þær skyldur sem á fasteignasala hvíla þegar kemur að gerð söluyfirlits út frá ákvæðum laga nr. 99/2004 um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
HRP_fasteignasala.pdf | 554.17 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |