is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Lagadeild > Lokaverkefni í lagadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/14116

Titill: 
  • Er réttarstaða skipverja skýr? : um 1.mgr. sjómannalaga
  • Titill er á ensku Is the legal status of fisherman clear? : about the first sentence of the 36th paragraph of law nr. 36/1985
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni ritgerðarinnar er 1. mgr. 36. gr. laga nr. 35/1985 sjómannalaga. Sérstaklega er túlkun dómstóla á málsgreininni skoðuð en fjölmargir dómar hafa fallið síðan lögin tóku gildi. Fyrst er litið á þróun vinnuréttar hér á landi er viðkemur rétti launafólks í sjúkdóma- og slysatilfellum. Sérstaklega er litið á þróun sjómannalaga en fyrstu lög sem tóku á rétti sjómanna voru sett 1914, þó var það ekki fyrr en 1930 sem fyrstu eiginlegu sjómannalögin voru lögfest. Hugtök sem skipta máli um túlkun réttar skipverja eru nánar útlistuð og þeir dómar sem taka á ákveðnum álitamálum eru reifaðir. Markmið höfundar er að komast að því hvort réttur skipverja sé nægilega skýr samkvæmt 1. mgr. 36. gr. laganna og þá sérstaklega varðandi skilgreiningu á orðinu „óvinnufær.“ Að lokum verða dregnar saman helstu niðurstöður höfundar, en þær eru að nokkur óvissa ríkir um skilgreiningu á óvinnufærni þegar kemur að réttindum skipverja.

Samþykkt: 
  • 6.3.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14116


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Er_rettarstada_skipverja_skyr_Sigursveinn_Thordarson.pdf520.9 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna