Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14185
Í ritgerðinni eru samrunar og yfirtökur skoðaðir með hliðsjón af samruna Landsbankans í Reykjanesbæ og SpKef sparisjóðs í Reykjanesbæ í mars 2011. Farið er yfir tegundir samruna, tilgang samruna og samrunaferli. Þá helst hvað ber að varast og hvaða mögulegar aðstæður geta komið upp við samruna, einnig hvernig algengt er að starfsfólk upplifi samruna fyrirtækja. Líðan starfsfólks við samruna er rauði þráðurinn í þessari ritgerð. Rannsókn fór fram í október 2012 um einu og hálfu eftir að samruninn gekk í gegn. Niðurstaða rannsóknarinnar er að samruni fyrirtækja hefur áhrif á líðan starfsfólks. Almennt er starfsfólk ánægt í vinnunni og finnst starfsandinn góður en upplifir samt sem áður mikið vinnuálag og finnur fyrir streitueinkennum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS ritgerð PDF Sigríður Lilja Sigurðardóttir.pdf | 968.3 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |