Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1430
Hér fer á eftir lokaverkefni í Tómstundafræði við Kennaraháskóla Íslands. Í lokaverkefninu er fjallað um ofþyngd og afleiðingar hennar á heilsu fólks. Skoðaðar eru íslenskar rannsóknir sem gerðar hafa verið á þyngd og hreyfimynstri barna og fullorðinna. Jafnframt er litið á kannanir á neysluvenjum Íslendinga. Rýnt er í þrjár námskrár grunnskólans með tilliti til hreyfingar og heilbrigðis, með það fyrir augum að tómstundafræðingar geti nýtt sér þær. Að lokum hefur verið útbúið forvarnarverkefni sem tómstundafræðingar geta nýtt sé í forvarnarvinnu gegn ofþyngd og hreyfingarleysi.
Niðurstöður rannsókna sýna að eitt af hverjum fjórum börnum og unglingum er of þungt eða of feitt og mörg börn hreyfa sig lítið dagsdaglega. Neysluvenjur barna og unglinga eru heldur ekki í samræmi við ráðleggingar um mataræði. Í rannsóknum sem gerðar hafa verið á fullorðnum Íslendingum kemur fram að þeir hafa þyngst undanfarin ár.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
unnurbjorkarnfjord - lokaverkefni 2007.pdf | 414.74 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
unnurbjorkarnfjord-kapaogtitilsida2007.pdf | 49.03 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna |