Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14339
Málefni barna af erlendum uppruna á Íslandi hafa verið ofarlega á baugi undanfarin ár. Í grein þessari er fjallað um mikilvægi þess að menning skóla í heild einkennist af jafnréttishugsun og
virðingu fyrir fjölbreytileikanum, til að starf með börnum af erlendum uppruna skili viðunandi árangri. Vísað er í dæmi og rannsóknir erlendis frá þessu til stuðnings og rætt um hvort sú
stefnumörkun sem átt hefur sér stað í málefnum barna af erlendum uppruna í skólum á Íslandi hafi leitt til velgengni þeirra. Velgengni hér á bæði við góðan árangur og framfarir í námi og sterka félagslega stöðu. Spurt er hvort þörf sé fyrir nýja grundvallarhugsun í skólastarfi á Íslandi, í samfélagi þar sem einstaklingum af ólíkum menningar- og trúarlegum uppruna fer fjölgandi. Í greininni eru einnig nefnd dæmi úr yfirstandandi eigindlegri rannsókn höfundar (2002 – 2005) á
stöðu og framförum nítján barna af erlendum uppruna sem hófu skólagöngu í fjórum leikskólum og tveim grunnskólum í Reykjavík árið 2002. Börnin eiga báða foreldra erlenda.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
11_hanna1.pdf | 339.35 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |