en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/14358

Title: 
  • Title is in Icelandic Af hverju við? Andleg, líkamleg og samfélagsleg áhrif ófrjósemi á parasambönd
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Hvernig við tökumst á við ófrjósemi stjórnast af okkar innri og ytri kröfum og á þeim byggjum við þær hugmyndir sem við höfum um okkur sjálf. Ófrjósemi er álagsþáttur sem hefur áhrif á parasambönd þar sem þráin um að eignast barn er mikil og getur barnleysið haft verulega mikil áhrif á líf þeirra í nútíð og framtíð. Barnleysi hefur áhrif á félagslega, menningarlega og tilfinningalega þætti og gegna þessir þættir lykilhlutverki í hvernig einstaklingar upplifa ófrjósemi. Ófrjósemi er viðurkennt heilsufarsvandamál af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni og er að finna í öllum samfélögum heimsins. Talið er að eitt af hverjum sex pörum um heim allan glími við ófrjósemi en fer það eftir aðgengi í hverju landi fyrir sig hvort einstaklingar fái þá aðstoð og meðferð sem til þarf. Tilgangur ritgerðarinnar er að varpa ljósi á þá þætti sem hafa áhrif á pör og einstaklinga sem eiga við ófrjósemisvandamál að stríða. Kannaður er þáttur félagsráðgjafa í meðferð para við ófrjósemi. Niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að ófrjósemi hefur áhrif á parasambönd og einstaklingana innan þeirra og eru áhrifin bæði jákvæð og neikvæð. Hlutverk félagsráðgjafa er að fylgja parinu og einstaklingunum eftir, hjálpa og styðja í gegnum ferlið.

Accepted: 
  • Apr 10, 2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14358


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
BA-RITGERÐ.pdf461,05 kBOpenHeildartextiPDFView/Open