Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1442
Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort tengsl séu á milli ástands skólalóða og hreyfingar barna í frímínútum. Jafnframt að kanna hvort börn sem eru líkamlega virkari í frímínútum séu einnig virkari eftir skóla og um helgar, hvort tengsl séu á milli líkamsþyngdarstuðuls og hreyfingar, hvort samband sé milli hreyfingar í frímínútum og þess að finnast skemmtilegt í frímínútum og hvort munur sé á hreyfingu milli kynja. Þátttakendur voru 98 börn, 47 stelpur og 51 strákur, í fjórða bekk í tveimur grunnskólum í Reykjavík. Lagður var fyrir spurningalisti um líðan barnanna í skólanum, hreyfingu og íþróttaiðkun í og utan skóla og sjálfstætt mat barnanna á skólalóðinni. Notast var við hreyfimæla sem börnin voru með um mittið í viku en þeir mældu ákefð hreyfingar barnanna. Hæð og þyngd var mæld til að finna út líkamsþyngdarstuðul. Vettvangskönnun var gerð til að sjá hvað börnin voru að gera og hvar á lóðinni þau léku sér í lengstu frímínútum dagsins. Helstu niðurstöður voru að ekki fannst marktækur munur á hreyfingu barna á milli skólanna. Þó svo að ekki hafi verið um tölfræðilega marktækan mun á hreyfingu að ræða er hugsanlegt að börnin séu engu að síður virkari í skólanum með betur útbúinni lóð vegna þess að meðaltalstölur hreyfimælanna voru hærri hjá þeim. Niðurstaðan úr vettvangskönnuninni var sú að börnin á verr útbúinni lóð virtust vera minna í leikjum en börnin á betur útbúinni lóð. Þar sem munur var á leiknum bendir það til þess að tengsl séu á milli hreyfingar í frímínútum og ástands skólalóða. Þau börn sem hreyfðu sig meira í frímínútum hreyfðu sig einnig meira eftir skóla og um helgar sem segir að þau börn sem eru virkari í daglegum störfum eru einnig virkari á skólatíma. Ekki var fylgni á milli hreyfingar og þess að finnast skemmtilegt í frímínútum og því virðist að þeir sem eru virkir og óvirkir finnist jafn skemmtilegt í frímínútum. Strákar hreyfðu sig marktækt meira en stelpur í frímínútum, eftir skóla og um helgar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
meginm.pdf | 485.97 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
Vidaukar.pdf | 206.89 kB | Opinn | Viðaukar | Skoða/Opna | |
titilsida.pdf | 28.09 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna |