Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/14456
Í greininni er sagt frá rannsókn á námsumhverfi á yngsta stigi grunnskóla með hliðsjón af námi og kennslu í anda stefnumörkunar um einstaklingsmiðað nám. Fjallað er um námsumh
verfi í skólastofum á yngsta stigi og hvernig það er frábrugðið námsumhverfi á eldri stigum grunnskólans. Reynt er að greina hvernig kennsluhættir tengjast skipulagi ytra umhverfis
í skólastofunni, uppröðun borða,tækjum og búnaði. Rannsóknin er hluti af stærra verkefni sem kallast Starfshættir í grunnskólum.
Þar var aflað gagna í 20 grunnskólum með vettvangsathugunum, spurningalistum og viðtölum. Í þessum hluta var einungis unnið úr vettvangsathugunum. Niðurstöður leiddu í ljós að umhverfi ískólastofum 1.– 4. bekkjar ígrunnskólunum 20 var með öðrum hætti en í eldri árgöngum, stofurnar voru líflegri, borðum var frekar raðað þannig að börnin sátu í hópum og horfðu hvert á annað og algengara var að sjá kennara vinna saman og deila með sér ábyrgð. Einnig kom í ljós að minna var um beina kennslu á yngsta stigi en á eldri stigum og meira um umræður í bekknum sem heild. Ekki virtist vera mikill munur á umhverfi milli ára á yngsta stigi. Enn virðist vera nokkuð í það að markmið um einstaklingsmiðað nám náist þó að greina megi vísbendingar um að þróun í þá átt sé lengra komin á yngsta stigi en öðrum aldursstigum.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
001.pdf | 491.3 kB | Open | Heildartexti | View/Open |