Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/14487
Tölvutækni og nettengingar eru stöðugt að þróast og því fylgja nýir möguleikar fyrir einstaklinga til að nálgast sjónvarpsseríur. Í ljósi þess þá þótti höfundi áhugavert að gera rannsókn á viðhorfi Íslendinga til niðurhalsþjónustu þar sem þeir gætu halað niður bandarískum sjónvarpsþáttum strax daginn eftir að þeir höfðu verið sýndir í Bandaríkjunum.
Einnig var markmið rannsóknarinnar að skoða núverandi atferli Íslendinga þegar kemur að löglegu og ólöglegu niðurhali á bandarískum sjónvarpsþáttum, þ.e. hve umfangsmikið það er og hvers vegna Íslendingar niðurhala sjónvarpþáttum með ólöglegum hætti.
Gerð var megindleg rannsókn í formi spurningarkönnunar. Notast var við hentugleikaúrtak meðal nemenda Háskóla Íslands. Niðurstaða rannsóknarinnar var að þó að Íslendingar hafi áhuga á niðurhalsþjónustu þá var það verð sem þeir voru tilbúnir að borga fyrir hverja sjónvarpsseríu lágt og vel undir því sem gengur og gerist. Umfang ólöglegs niðurhals var að meðaltali um 3 þættir á viku.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Sverrir Sigurðsson - MS lokaritgerð.pdf | 943,27 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |