Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/14687
Í þessari ritgerð verður leitast við að varpa ljósi á þær ytri áhættur í starfsumhverfi fyrirtækja sem áhrif hefur á skuldaraáhættu þeirra. Ytri áhættur skapast til að mynda í efnahagsumhverfi ríkja sem snúa að inngripum stjórnavalda s.s. setningu nýrra laga og peningamálastefnu. Gerð verður grein fyrir innviðum ríkja og mikilvægi þeirra í þróun þjóðfélagsins. Nánast öll fyrirtæki ganga í gegnum hagskeið (e. buisness cycles) og verður rætt um áhrif þess á bæði atvinnuvegi og fyrirtæki. Í framhaldinu verður fjallað um markaðsumhverfi fyrirtækja og skoðaðir þættir sem hafa áhrif á starfsemi fyrirtækja og hvernig sú áhætta sem stafar af þeirri atvinnugrein, sem starfað er í, hefur áhrif á skuldaraáhættu. Að lokum verður rætt um mikilvægi samkeppnis og stöðugleika fyrirtækja.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Gabríel Ari Gunnarsson BS.pdf | 458,23 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |